Ég hef verið að fikra mig áfram í meðlæti með hummus. Mér finnst hummus mjög góður, en hef verið að leita að meðlæti með örlitlu “twisti”. Mér datt í hug að rauðrófur gætu verið góðar, þær eru sætar, hollar og fallegar á litinn. Þannig að ég byrjaði twistsmeðlætisferðalagið mitt á því að rífa niður rauðrófur og marinera þær. Það kom vel út. Næst ákvað ég að bæta smá fersku engiferi út í og í þriðja skiptið bætti ég gulrótum og mintu með í “twistið”. Hér koma allar útfærslurnar.
Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: rauðrófur, gulrætur
Krydd og kryddjurtir: engifer, minta
Uppskrift að hummus er að finna hér. Það er ágætt að minnka sítrónusafann niður í 1/4 bolla og cayenne piparinn niður í 1/4 tsk til að hummusinn yfirgnæfi ekki bragðið af rauðrófunum.
1. rauðrófu”twistið”
1 meðalstór rauðrófa rifin
1 tsk ólífuolía
1 tsk balsamik edik
svartur pipar
örlítið salt
Blandið ólífuolíu, ediki, svörtum pipar og salti saman í skál og hellið yfir rauðrófurnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.
2. rauðrófu”twistið” með engiferi
1 meðalstór rauðrófa rifin
1 tsk ólífuolía
2 tsk balsamikedik
1 tsk ferskt engifer
svartur pipar
örlítið salt
Blandið ólífuolíu, ediki, engiferi, svörtum pipar og salti saman í skál og hellið yfir rauðrófurnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.
3. rauðrófu”twistið” með gulrótum og mintu
1 lítil rauðrófa rifin
1 gulrót rifin
1 tsk ferskt engifer
1 tsk ólífuolía
2 tsk balsamik edik
10 mintulauf söxuð
Blandið saman engiferi, ólífuolíu, balsamik ediki og mintu í skál og hellið yfir rauðrófurnar og gulræturnar. Berið fram með hummus og niðurskornu súrdeigsbaguette brauði.
Filed under: engifer, gulrætur, Hummus, rófur, Smáréttir, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, engifer, gulrætur, Marineraðar rauðrófur, Minta, smáréttur




