Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Chia búðingur með hindberjum og hemp hjörtum

Um daginn fór ég á hráfæðisnámskeið sem Solla á Gló hélt þar sem Kate Magic kenndi listir sínar. Kate Magic er þekkt nafn í hráfæðisheiminum og hefur hún gefið út þrjár bækur auk þess að halda úti ferskri og skemmtilegri heimasíðu með allskyns fróðleik og uppskriftum. Námskeiðið var virkilega fræðandi og skemmtilegt. Þar lagði hún að sjálfsögðu mikla áherslu á jákvæða þætti þess að vera hráfæðisæta og kenndi okkur ýmis undirstöðuatriði.  Einn af þeim réttum sem hún galdraði fram var chia búðingur. Chia er, eins og ég hef áður fjallað um, algjört ofurfæði, stútfullt af omega 3 fitusýrum og virkilega orkugefandi. Á námskeiðinu bjó hún til búðing sem innihélt möndlumjólk, epli og rúsínur (uppskrift á síðunni hennar finnst hér). Ég þarf hins vegar alltaf að hugsa um þá útgáfu sem líklegast er að þóknist lítilli tveggja ára draumarós og þess vegna ákvað ég að hafa möndlumjólk og hindber í vökvanum og strá síðan hemp fræjum yfir áður en ég bar búðinginn fram. Ég verð þó að viðurkenna að ungfrúin hafði ekki mikla lyst á búðingnum enda dálítið skrítinn undir tönn. Mig langaði þó að birta þessa uppskrift til þess að vekja athygli á þessum möguleika, sérstaklega fyrir þá sem eru að reyna að auka inntöku á omega 3, því þetta er algjör omega 3 bomba. Til þess að nýta afganginn af búðingnum hef ég bara laumað honum í smootie-ana okkar á morgnana og það finnst litlu fínt. Ég hvet fólk til þess að kíkja á síðuna hennar Kate Magic og prófa uppskriftirnar hennar. Þær eru margar hverjar mjög spennandi.

Auk þess að vera gífurlega rík af omega 3 innihalda chia fræ einnig efnin kaempferol, quercetin og myricetin sem rannsóknir hafa sýnt að geti unnið gegn krabbameini. Kaempferol er auk þess m.a. að finna í spergilkáli og te-i. Quercetin er að finna í grænmeti (í sérstaklega miklu mæli í rauðlauk) og ávöxtum en einnig í miklu mæli í grænu te-i. Myricetin er svo einnig að finna í ávöxtum, grænmeti og te-i (heimild).

Að lokum verð ég að segja ykkur frá því að á námskeiðinu fékk ég æðislegar fréttir. Solla lýsti því yfir að fljótlega myndi hún fara að selja hemp fræin/hjörtun í línunni sinni. Þetta gladdi mig mikið, enda er ég einstakur hemp hjörtu/fræja aðdáandi. Þá get ég líka farið að birta fleiri uppskriftir með hemp hjörtum án samviskubits, því nú hafið þið fljótlega öll greiðan aðgang að þessu einstaka ofurfæði.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: hindber
Hnetur og fræ: chia fræ, möndlur, hemp fræ

Uppskrift
gerir 3-4 bolla af búðingi

1/2 bolli chia fræ
2 bollar möndlumjólk
1 bolli hindber (frosin eða fersk)
1 msk. hlynsíróp
2 msk. hemp fræ/hjörtu

Blandið öllu nema hemp fræjunum saman í skál og látið standa á borði, eða í ísskáp í að minnsta kosti 40 mínútur þannig að chia fræjin nái að bólgna vel út og mynda búðinginn. Berið fram með ávöxtum, t.d. niðurskornum banana, eða eitt og sér.

About these ads

Filed under: chia fræ, hemp fræ, hindber, möndlur, , , , , , , , , , ,

Brún hrísgjón með tófú og grænu karrý

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: spergilkál, laukur
Krydd: engifer, hvítlaukur
Kornmeti: hrísgrjón, sojabaunir

Uppskrift
fyrir 4

2 bollar brún hrísgrjón
1 pakki meðalþétt eða þétt tófú þerrað
1 msk saxað ferskt engifer
4 hvítlauksrif
1 rauðlaukur
1 haus spergilkál
2 msk grænt karrýmauk (karrý paste)
1 msk fiskisósa
2 msk kókosolía
3 lime lauf
Lítil dós kókosmjólk
salt og pipar eftir smekk

Sjóðið hrísgrjónin eftir upplýsingum á pakka.

Hitið 1 msk af kókosolíu á wokpönnu og bætið grænu karrýmauki út í. Bætið næst tófúi út í og steikið þar til allar hliðar þess eru orðnar brúnaðar. Takið þá tófúið af og leggið til hliðar.

Hitið hina msk-ina af kókosolíunni og bætið engiferi og hvítlauk á pönnuna. Látið steikjast í um mínútu og bætið þá spergilkáli og lauk á pönnuna. Steikið í 2-3 mínútur á háum hita. Bætið þá fiskisósunni út í og hrærið vel. Bætið því næst tófúinu aftur á pönnuna og hrærið saman við. Bætið þá kókosmjólk, lime laufum og salti og pipar út í og hrærið.  Sjóðið í 7-10 mínútur. Bætið þá hrísgrjónum á pönnuna og hrærið saman. Berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: engifer, hrísgrjón, hvítlaukur, Karrý, laukur, sojabaunir, spergilkál, Tófú, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Steikt brún hrísgrjón með tófú og grænmeti

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: chili, spergilkál, laukur, gulrætur
Krydd: hvítlaukur, ferskt kóríander, svartur pipar
Kornmeti og baunir: hrísgrjón, sojabaunir (tófú)

Uppskrift
fyrir 4

1 bolli brún hrísgrjón
2*1 msk kókosolía
1 pakki tófu þerrað og skorið í litla kubba
3 hvítlauksrif marin
7 ferskri asparsstilkar skornir í fernt
1 spergilkálshaus skorinn í bita
1 stór laukur niðurskorinn
10 litlar gulrætur skornar langsum í fernt (baby carrots)
2 egg hrærð
1/2 dl chili garlic sósa
1/2 dl sojasósa (helst kikkoman)
Saxað ferskt kóríander
Saxaðar möndlur

Sjóðið brúnu hrísgrjónin í samræmi við upplýsingar á pakka.

Setjið kókosolíuna á vokpönnu og hitið þar til olían er orðin mjög heit. Steikið tófuið þar til það hefur brúnast, í 3-4 mínútur. Takið það af pönnunni og geymið á disk til hliðar. Bætið annarri matskeið af kókosolíu á pönnuna og byrjið að steikja gulræturnar í u.þ.b. 2 mínútur. Bætið þá hvítlauknum á pönnuna og síðan afganginum af grænmetinu. Steikið á eins miklum hita og hægt er í 3-4 mínútur. Bætið þá hrærða egginu út í og látið eggið blandast saman við grænmetið og steikjast, í um 2 mínútur. Bætið þá soðnu hrísgrjónunum saman við og að lokum chilisósunni og sojasósunni. Blandið saman og steikið í um 2-3 mínútur. Malið salt og pipar yfir eftir smekk. Stráið fersku kóríander og söxuðum möndlum yfir og berið fram.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, gulrætur, hrísgrjón, hvítlaukur, laukur, sojabaunir, spergilkál, Tófú, Uppáhalds, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 366 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 366 other followers

%d bloggers like this: