Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Pasta með pestó, spergilkáli og goji berjum

Þá er maður loksins sloppinn úr prófageðveikinni og farinn að lifa eðlilegu lífi. Ótrúlegt hvernig maður lætur í próflestri, gleymir öllu sem tengist manns eigin vellíðan og heilbrigði og einbeitir sér eingögnu að lestri og utanbókarlærdómi. En nú tekur heilbrigt líferni við með öllu tilheyrandi, jóga, te drykkju, hollum mat og hvíld.

En fyrir svona mánuði síðan, áður en törnin byrjaði, fór ég í æðislega afmælisveislu hjá þriggja ára frænku minni. Þar var á boðstólnum pastasalat sem ég hugsaði um í marga daga á eftir og setti saman uppskriftir að í huganum. Salatið var með grænu pestó, spergilkáli og goji berjum. Alveg frábær blanda.

Svona til að bæta smá fróðleik inn í færsluna þá rakst ég á þessa grein á síðunni Food for Breast Cancer og í henni er fjallað um þann mat sem konur sem greinast með ákveðna tegund brjóstakrabbameins ættu að borða. Þar er spergilkál meðal annars tiltekið sem og basil. Ég geri ráð fyrir að sama gildi um aðra einstaklinga sem vilja vera heilbrigðir og koma í veg fyrir sjúkdóma.

Hér kemur svo mín útgáfa af salatinu góða.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: goji ber
Grænmeti: spergilkál, spínat
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, basil

Uppskrift
fyrir 4-6

500 gr. penne pasta

Pestó
1/2 stykki parmesan ostur
1 bakki ferskt basil
1 dl. extra virgin ólífuolía+2-3 msk pistasíuolía (má sleppa)
1 poki ristaðar furuhnetur (70 gr.)
2 hvítlauksrif
1/2 tsk salt

1 stór spergilkálshaus brotinn í bita
1/2-1 poki spínat (magn eftir smekk)
1 dl. goji ber
Salt og nýmalaður pipar eftir smekk

Sjóðið pastað í samræmi við leiðbeiningar. Kælið niður í stofuhita.

Hitið vatn í potti með smá salti. Hellið spegilkálsbitunum út í þegar suðan er komin upp og látið sjóða í 2-3 mínútur. Hellið vatninu af spegilkálinu, bætið goji berjunum saman við og hrærið. Látið kólna. Á þennan hátt mýkjast gojiberin.

Setjið öll innihaldsefnin í pestóinu í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið smá aukaolíu við ef pestóið er of þurrt. Það á ekki að vera fljótandi, en þó ekki algjört mauk, s.s. hæfilega mjúkt.

Blandið pasta, pestói, spergilkáli, gojiberjum og spínati saman í skál. Gott er að láta pastað kólna aðeins í ísskáp, í 10-15 mínútur. Skreytið með goji berjum og berið fram.

About these ads

Filed under: basil, goji ber, hvítlaukur, Pasta, Pestó, Salöt, spínat, spergilkál, Uppskriftir, , , , , , ,

Sparibleikja með rauðu karrý og spínati

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti:
spínat
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, engifer, chili, túrmerik, svartur pipar, steinselja

Uppskrift
fyrir 4

4 lítil bleikjuflök
salt og nýmalaður svartur pipar
2 msk. extra virgin ólífuolía
1 msk. kókosolía
4 hvítlauksgeirar marðir
1 tsk. ferskt engifer rifið
1/2 ferskur rauður chili smátt saxaður (má sleppa)
3 msk. rautt karrýmauk
1 tsk. túrmerik
nýmalaður svartur pipar
1 dós kókosmjólk
1 tsk. hrásykur
4 lime lauf (eða safi úr einni límónu)
2 pokar spínat
1 msk. fiskisósa
1 msk. sojasósa

Hitið ofninn upp í hæsta mögulega hita og stillið á grill.

Merjið hvítlaukinn og látið hann anda.

Leggið bleikjuflökin í ofnskúffu og hellið extra virgin ólífuolíu yfir. Kryddið með salti og nýmöluðum svörtum pipar og leggið til hliðar.

Hitið kókosolíu á wokpönnu og steikið saman hvítlauk, engifer, chili, karrýmauk, túrmerik og svartan pipar í um 3 mínútur. Bætið spínati saman við og látið spínatið mýkjast upp. Bætið því næst kókosmjólk, hrásykri, lime laufum, fiskisósu og sojasósu saman við og látið suðuna koma upp. Lækkið undir og látið malla við lágan hita á meðan fiskurinn grillast.

Grillið fiskinn í ofni í um 3-5 mínútur eða þar til hann er næstum grillaður í gegn.

Berið fiskinn fram á spínatbeði og skreytið með ferskri steinselju.

Filed under: chili, engifer, Fiskur, hvítlaukur, Karrý, spínat, steinselja, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, , , , ,

Orkusmoothie

Þessa dagana er ég að prófa mig áfram á morgnana í smoothy gerð. Ég hef verið að reyna að finna íslenskt orð yfir smoothy en mér hefur ekki dottið neitt í hug. Ég fletti því upp í tölvuorðabókinni minni og þá kom upp þýðingin “stimamjúkur”. Það er nú líklega ekki verri þýðing en hver önnur en mér finnst það eitthvað óþjált. En sem sagt, minn stimamjúki drykkur í morgun samanstóð af geisilega hollum og næringarríkum fæðutegundum sem allir ættu að reyna að koma inn í sitt mataræði á einn eða annan hátt.

Avokadó og spínat eru grunnurinn að súperhollustunni í þessum drykk. Avókadó er ein af þeim fæðutegundum sem kallað hefur verið superfood og t.d. David Wolfe fjallar mikið um í bókunum sínum. Avókadó er uppfullt af hollri fitu auk þess að vera ríkt af fólísýru, K-vítamíni, trefjum og fleiri nauðsynlegum næringarefnum. Spínat er að sama skapi líka algjört súperfæði (sjá nánar hér).

Hvað varðar jógúrtið þá er á bls 101 í bókinni Bragð í baráttunni fjallað um krabbameinshamlandi áhrif jógúrts og kemur eftirfarandi fram:

,,Dagleg neysla matar sem inniheldur meltingargerla er auðveld og áhrifarík aðferð til að viðhalda háu gildi mjólkurbaktería í ristlinum og fyrirbyggja þannig þróun krabbameins”.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: banani, avókadó, goji ber, sítrus ávextir
Grænmeti: spínat
Fræ og kornmeti: chia fræ, hafrar
Jógúrt

Uppskrift

fyrir 2 fullorðna og eina litla 19 mánaða orkubombu

1 dós lífrænt ræktað kókosjógúrt frá Bíóbú
1 bolli haframjólk
1 lítið avókadó
1 banani
1 lúka spínat
10 goji ber
1 msk chia fræ
safi úr hálfu lime
1 tsk. agavesíróp (má sleppa)
5-6 klakar

Allt sett í blandara og hrært þar til drykkurinn er orðinn stimamjúkur. Hellt í glas og drukkið með bros á vör.

Filed under: bananar, chia fræ, Drykkir, goji ber, haframjöl, Jógúrt, Morgunmatur, sítrus ávextir, spínat, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , ,

Quesadillas með spínati og feta osti

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: Laukur, spínat, chili
Krydd: hvítlaukur, rósmarín
Sveppir: sveppir

Uppskrift
fyrir 4-5

2 tsk ólífuolía
4 skarlottulaukar skornir í þunnar ræmur
2 laukar niðurskornir
2 hvítlauksrif marin
7-10 hvítir sveppir niðurskornir
300 gr. spínat
1 ferskur grænn chili smátt skorinn
1/2-1 tsk salt
nýmalaður pipar
1 tsk ítalskt krydd eða bland af rósmarín, timían og origanó
6 eggjahvítur
6 mjúkar tortillakökur
1 bolli fetaostur í vatni (þerraður)
1 bolli mozarella ostur
rifinn ostur ofan á

Hellið olíunni á pönnu og hitið í 2-3 mínútur. Bætið lauknum á pönnuna og steikið í um 2-3 mínútur. Bætið þá sveppunum og hvítlauknum á pönnuna og steikið í aðrar 3 mínútur. Bætið því næst spínatinu auk kryddblöndunnar. Steikið í um 2 mínútur í viðbót eða þar til spínatið er orðið alveg mjúkt. Hellið af pönnunni í skál og blandið eggjahvítunni út í og fetaostinn og helminginn af rifna ostinum. Þurrkið pönnuna og setjið mjúka tortillaköku á, smá rifinn ost og spínatblöndu á annan helminginn af skelinni. Lokið svo skelinni og steikið í nokkrar mínútur við lágan hita. Snúið við og steikið í smá stund til viðbótar. Leggið í eldfast mót. Gerið það sama við allar kökurnar, stráið smá rifnum osti yfir og setjið á grill inn í ofn í 2-3 mínútur. Berið fram með salsa sósu, sýrðum rjóma og fersku salati.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, hvítlaukur, laukur, Quesadillas, rósmarín, spínat, Sveppir, Uppáhalds, , , , , , ,

Grænn kókos-, ananas- og spínatdrykkur

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: ananas
Grænmeti: spínata

Uppskrift
fyrir 2

1 bolli kókosvatn
1 bolli ferskur ananas skorinn í bita
2 troðnir bollar spínat

Setjið allt saman í blender og blandið þar til orðinn er til grænn og girnilegur súperholl hreinsisafi. Bætið klökum við eftir smekk.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: ananas, Drykkir, Morgunmatur, spínat, Uppskriftir, , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: