Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Nýtt ár með ramen súpu

Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð. Ég er með mikið samviskubit eftir erfiða ritstíflu. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég fékk algjört ógeð á tölvunni minni þann 14. desember síðastliðinn, þegar ég skilaði ritgerðinni minni, og hef bara nánast ekki tekið hana fram síðan þá. En með nýju ári hef ég hug á að vera duglegri en nokkru sinni fyrr, því að nú eru námsbækurnar ekki lengur að þvælast fyrir mér fram eftir nóttu og um allar helgar. Það má eiginlega segja að árið 2011 hafi verið ár stöðnunar hjá mér. Þegar ég lít yfir árið þá finnst mér ég hafa lært ansi fátt nýtt þegar kemur að heilsu og efni þessarar síðu. Það er að sjálfsögðu ekki rétt því ég las margar góðar bækur og borðaði margt nýtt og ljúffengt. Auk þess jókst fjöldi lesenda mikið og vonandi fleiri vaknað til meðvitundar um mikilvægi þess að borða holla fæðu.

Í fyrra skrifaði ég lista yfir helstu nýjungarnar sem ég kynntist á árinu. Ég hef hugsað mér að gera það líka núna. Svo í framhaldinu langar mér að benda ykkur á nokkrar góðar bækur sem ég mæli sérstaklega með. En við skulum byrja á nýjungunum.

Það sem kemur fyrst upp í hugann er mísó. Þrátt fyrir að hafa notað mísó aðeins í Vancouver  má eiginlega segja að ég hafi uppgötvað misó á nýjan hátt á þessu ári. Gwyneth Paltrow hafði nokkuð með það að gera þar sem mísó dressingin hennar er alveg æðisleg. Hana hef ég gert ansi oft á þessu ári og sett mitt handbragð á hana eins og sjá má í rauðrófusalatinu sem ég birti hér fyrir nokkrum mánuðum. Eini ókosturinn við misó er að það er ansi dýrt, og kvarta ég nú sjaldan yfir verði á mat svo lengi sem gæðin eru til staðar. Það furðulega við það er að í Vancouver er misó mjög ódýrt en þegar ég bjó þar kunni ég ekki að nota það. Kínóa er hins vegar mjög dýrt í Vancouver en á nokkuð viðráðanlegu verði hér á landi, þökk sé Sollu snillingi. Þannig að önnur nýjungin á árinu verð ég að segja að sé kínóa. Kínóa er algjört ofurfæði, sem hægt er að nota í óteljandi rétti. En það sem ég hef mest notað það í eru salöt, grautar og súpur. Á nýja árinu ætla ég mér hins vegar að þróa gott kínóanammi og fleira úr þessu einstaka undrafræi.

Hvað bætiefni varðar langar mig að nefna grænt duft sem ég byrjaði að taka á árinu. Það kallast pHion Green Superfood og inniheldur gríðarlega mikið magn af þurrkuðum fræjum, grænmeti, spírum, höfrum o.fl. sem inniheldur ógrynni af krabbameinshamlandi plöntuefnum. Þessi vara held ég að sé algjörlega einstök hvað gæði og innihald varðar. Ég hef yfirleitt blandað einni teskeið út í safa eða smoothie á morgana og drukkið. Annað bætiefni sem mig langar að nefna en ég hef þó tekið í nokkur ár er Chlorella. Þegar kemur að forvörnum gegn krabbameini og bætiefnum í meðferð hef ég tekið eftir því að Chlorella er mjög oft nefnd. Chlorella er grænn þörungur sem inniheldur mikið magn andoxunarefna á borð við C-vítamín og Beta karótín. Chlorella inniheldur einnig mjög mikið magn blaðgrænu, sem er grundvöllur ljóstillífunar í plöntum.  Auk þess benda rannsóknir til þess að chlorella bindist við efni sem geta valdið krabbameini og komi í veg fyrir eða minnkað virkni þeirra (heimild). Þriðja bætiefnið sem ég ætla að nefna og var nýjung á árinu 2011 var Royal Jelly. Royal Jelly er afurð býflugna og inniheldur gríðarlega mikið magn næringarefna og amínósýra. Rannsóknir benda til þess að Royal Jelly sé bólguhamlandi og geti haft hamlandi áhrif á vöxt krabbameins. Ég fann að vísu ekkert mjög mikið af efni um þetta en endilega googlið og lesið ykkur til um þetta merkilega bætiefni. Að lokum vil ég benda ykkur á bætiefni sem heitir Liver blend og er frá Solaray. Bækur sem fjalla um mataræði og forvarnir gegn krabbameini leggja yfirleitt mikla áherslu á neikvæð áhrif sykurs á vöxt og myndun krabbameins. Í því sambandi er yfirleitt alltaf talað um mikilvægi lifrinnar þegar kemur að því að vinna úr sykri í líkamanum (endilega skoðið frábæra grein um þetta sem birtist á heimasíðu New York Times, sjá hér). Þetta bætiefni er frábært fyrir þá sem detta stundum í sykurinn (eða áfengið) og aðstoðar líkamann þá við að vinna úr honum. Liver blend er blanda af mjólkurþistli (milk thistle) og fíflum (dandelion), en einnig eru jurtirnar burdock, ætiþistlar, þari og piparmynta í blöndunni. Ég mæli með smá lifrardetoxi núna eftir jólatörnina og þá er þessi blanda alveg tilvalin.

En mig langar einnig að birta holla og næringarríka súpu sem ég er orðin mjög hrifin af. Þetta er mín útfærsla á japanskri ramen súpu. Ramen súpur eru japanskar núðlusúpur sem oft á tíðum innihalda misó. Ég á minn uppáhaldsramenstað í Seattle sem heitir Samurai Noodles. Þegar ég kom til Seattle í ágúst var það nánast mitt fyrsta verk að fara á þennan stað og fá mér ramen súpu með misó og chili. Súpan mín er nú kannski ekki alveg eins háþróuð og sú sem fæst á Samurai noodles en hún er góð og krefst mjög lítillar fyrirhafnar. Hér kemur uppskriftin.

Uppskrift
fyrir 4

1,5 l vatn
3 rapunzel grænmetisteningar
4 msk. misó (bæði hægt að nota ljóst og dökkt misó)
½ púrrulaukur skorinn í þunnar sneiðar
½-1 dl. engifer, skorið í strimla eða eftir smekk
3-4 msk. kryddlegin söl frá íslenskri hollustu
1-2 tsk. chili olía eða eftir smekk (má sleppa)
1 msk. tamari sósa – eða soja sósa
1 bakki baunaspírur
chili flögur eftir smekk
2 kjúklingabringur skornar í munnbita eða 1 kubbur af tófú skorinn í ferninga

Soba núðlur fyrir 4 (má líka nota udon núðlur eða hrísgrjónanúðlur)

Sjóðið soba núðlurnar í potti í aðeins styrri tíma en segir á pakkanum (um tveimur mínútum styttri tíma). Ef þið notið soba núðlur er mjög mikilvægt að láta kalt vatn renna yfir þær strax og vatninu er hellt af þeim, til þess að þær haldi ekki áfram að eldast. Þetta er góð regla með allar núðlur en sérstaklega mikilvægt með soba núðlur.

Hellið vatni í pott. Blandið teningum, misó, púrrulauk, engiferi, chili olíu og tamari sósu saman við. Látið suðuna koma upp. Bætið sölum og kjúklingi/tófú saman við. Látið sjóða í 5 mínútur eða þar til kjúklingurinn er soðinn í gegn eða tófúið heitt í gegn.

Deilið soba núðlunum í skál, hellið súpunni yfir og skreytið með baunaspírum og chiliflögum.

Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu.

About these ads

Filed under: chili, engifer, kínóa, Kjúklingur, laukur, Rannsóknir, Söl, Súpur, Sjávargróður, Tófú, Uppáhalds, Vegan, , , , , , , , ,

Linsubaunasúpa með appelsínum og engiferi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:

Ávextir: appelsínur
Grænmeti: 
rauðlaukur,
Krydd: karrý, kanill
Hnetur og fræ: 
valhnetur
Baunir: linsubaunir

Uppskrift
fyrir 4-6

1-2 msk. repjuolía
3 rauðlaukar – litlir
2 litlar appelsínur niðurskornar
2 tsk. hot madras karrý + svartur pipar
1,5 lítrar vatn
2 msk. grænmetiskraftur frá himneskri hollustu
2 tsk. maldon salt (minna ef maður notar venjulegt salt)
5 cm langur bútur af fersku engiferi, niðurskorið (eða eftir smekk
1 bolli rauðar linsubaunir
kanill á hnífsoddi

Grískt jógúrt
Hunangsristaðar valhnetur

Steikið laukinn upp úr repjuolíunni í 3-5 mínútur eða þar til hann hefur linast vel. Bætið þá karrýi, engiferi, kanil og appelsínum saman við og steikið í 1-2 mínútur. Hellið vatninu saman við og bætið krafti og salti saman við. Látið suðuna koma upp og lækkið undir. Látið malla í 25 mínútur. Maukið og berið fram með grísku jógúrti og hunangsristuðum valhnetum.

Filed under: Jógúrt, kanill, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, valhnetur, , , , , ,

Blómkálssúpa með púrrulauk og chili

Ég á mér nokkur uppáhalds matarblogg. Það er mikið um matarblogg á netinu og þau eru að sjálfsögðu jafn misjöfn og þau eru mörg. Ég hef gaman að því að skoða vel uppsett, falleg blogg sem innihalda hollar og frumlegar uppskriftir. Síðan Green Kitchen Stories inniheldur öll þessi atriði. Ég hef einnig mikinn áhuga á umhverfismálum og allt sem leggur áherslu á umhverfisvernd rek ég augun í og les af áhuga.

Mig langar aðeins að fjalla um ferska steinselju í sambandi við þessa uppskrift. Fersk steinselja er bólguhamlandi og hefur andoxunar áhrif á líkamann. Andoxunarefni vinna gegn sindurefnum í líkamanum. Sindurefni (e. free-radicals) auka líkurnar á óeðlilegum frumubreytingum sem geta leitt til krabbameinsmyndunar. Andoxunarefni gera sindurefni stöðug og koma því í veg fyrir skaðlega virkni þeirra. Auk þess er fersk steinselja rík af K vitamíni og inniheldur einnig talsvert magn af C vítamíni og A vítamíni. Meira um krabbameinhamlandi áhrif steinselju hér.

Þessa uppskrift fann ég á Green Kitchen Stories og lagaði hana aðeins að anti-cancer markmiðum síðunnar. Súpan kom vel út og verður án efa búin til fljótlega aftur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir
Grænmeti:
laukur, blómkál,
Krydd og kryddjurtir: hvítlaukur, chili, steinselja, svartur pipar
Fræ: graskersfræ

Uppskrift
fyrir 4

1 msk. kókosolía
1 rauðlaukur niðurskorinn
4 hvítlauksgeirar marðir
1 ferskur grænn chili smátt skorinn
1 blómkálshaus niðurskorinn
2 púrrulaukar niðurskornir
½ l. vatn
½ l. grænmetissoð
1 sítróna, bæði safinn og rifinn börkurinn (bara ysta lagið)
2 msk fersk steinselja söxuð
salt og pipar eftir smekk
graskersfræ, steinselja, ristaðar möndluflögur og sýrður rjómi (má sleppa) til skrauts

Hitið olíuna í potti og steikið rauðlauk, hvítlauk og chili þar til laukurinn er farinn að brúnast örlítið. Bætið blómkáli og púrrulauk út í og steikið áfram í nokkrar mínútur. Bætið vatni og soði saman við og látið suðuna koma upp. Lækkið undir og látið sjóða við vægan hita þar til blómkálið er orðið mjúkt, u.þ.b. 10-15 mínútur. Maukið með töfrasprota eða í blender. Bætið sítrónusafa, berki, steinselju, salti og pipar saman við. Skreytið hverja skál með ferskri steinselju, sýrðum rjóma (má sleppa) ristuðum möndluflögum og graskersfræjum og berið fram.

Filed under: blómkál, chili, graskersfræ, hvítlaukur, laukur, sítrus ávextir, Súpur, steinselja, svartur pipar, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Súpersúpa með núðlum

Mér finnst eins og síðastliðna daga hafi allir verið að veikjast. Þrátt fyrir góða veðrið þá virðist einstaklega algengt að fólk sé með hálsbólgu og kvef. Ég er með einn lasarus hér á heimilinu og þess vegna ákvað ég að búa til einhverja virkilega holla og bragðmikla súpu til þess að reyna að bæta ástandið.

Súpan er létt, en bragðmikil og er borin fram með núðlum eða ef til vill brúnum hrísgrjónum. Soba núðlur væru án efa besti kosturinn (þó svo að ég hafi notað eggjanúðlur í þetta skiptið) þar sem þær eru hollustu núðlur sem maður finnur. Þær innihalda bókhveiti og þannig rútin sem rannsóknir sýna að geta unnið gegn krabbameini m.a. í blöðruhálskirtli, brjóstum, leghálsi og ristli (sjá nánar hér). Bókhveiti inniheldur einnig talsvert af E-vítamíni, sem margir telja vinna á fyrirbyggjandi hátt gegn myndun krabbameins, auk ýmissa steinefna. Rútin vinnur gegn bólgumyndun í líkamanum og er einnig gott fyrir þá sem fá mar auðveldlega, vegna þess að það styrkir æðakerfi líkamans. Ég kaupi soba núðlurnar yfirleitt í Asian á Suðurlandsbraut en þær fást vísast líka í heilsubúðum.

Í súpuna notaði ég madras karrý frá Green Cuisine sem mig minnir að ég hafi keypt í Heilsuhúsinu. Það inniheldur kóríander, kúmin, engifer, fennel, negulnagla, túrmerik, fenugreek, pipar, chili og lárviðarlauf. Þetta er skemmtilegt karrý, vel gult á litinn sem bendir til þess að það sé talsvert af túreriki í því.  Ég blandaði selleríi, engiferi, hvítlauk, fersku chili, karrý, svörtum pipar og ólífuolíu saman með töfrasprota. Það er mjög mikilvægt að láta túrmerik blandast saman við olíu auk þess að blanda saman við það svörtum pipar. Það eykur virkni þess gríðarlega mikið.

Ég notaði rækjur í súpuna núna vegna þess að það var það sem ég átti. Ég hef hins vegar búið þessa súpu til með kjúklingi líka og það var mjög gott. Þá er kjúklingnum bætt út í súpuna á eftir soðinu og kókosmjólkinni og hann látinn sjóða með í súpunni. Auk þess held ég að það sé alveg þess virði að prófa að setja tófú í súpuna. Lykilatriðið er að kaupa mjög þétt tófú, svo það molni ekki.  Ég myndi setja tófúið út í súpuna rétt áður en hún er borin á borð, eins og ég geri núna með rækjurnar.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, sellerí
Krydd og kryddjurtir: chili, engifer, hvítlaukur, kóríander, kúmin, engifer, fennel, negulnagla, túrmerik, fenugreek, pipar, chili og lárviðarlauf

Uppskrift
fyrir 4-6

1 pakki soðnar soba núðlur/eggjanúðlur
2 bollar rækjur
2 sítrónugrasstilkar skornir í 5 cm langa búta og marðir
1 stór laukur niðurskorinn
3 cm langur bútur af fersku engiferi
4 hvítlauksgeirar
2 stilkar sellerí
2 msk madras karrý
1 stór rauður chili
2 msk ólífuolía
¼  bolli vatn
5 bollar grænmetissoð
1 dós kókosmjólk
1 msk fiskisósa
1 msk sojasósa
1 msk hunang
2 msk saxað ferskt kóríander
salt og pipar eftir smekk

Sjóðið eggjanúðlurnar í potti skv. upplýsingum á pakka.

Setjið engifer, hvítlauk, chili, sellerý, karrý, ólífuolíu og vatn í skál og maukið með töfrasprota (einnig hægt að nota matvinnsluvél eða ef til vill saxa smátt og blanda saman). Steikið blönduna í stórum potti í 1-2 mínútur. Bætið örlítilli ólífuolíu á pönnuna ef þess þarf. Bætið lauk og sítrónugrasi við og steikið í 2-3 mínútur til viðbótar. Bætið því næst grænmetissoði og kókosmjólk út í og látið suðuna koma upp. Setjið lokið á pottinn og látið malla við vægan hita í 10-15 mínútur. Bætið rækjum og kóríander út í og látið áfram malla í 2-3 mínútur til viðbótar. Berið súpuna fram með núðlum og brauði.

Filed under: chili, engifer, fennel, fenugreek, hvítlaukur, Karrý, laukur, negulnaglar, Súpur, sellerí, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: