Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Blómkálssúpa með smjörbaunum

Þessi súpa er ekkert nema bara hollusta. Allt sem að í hana fór var hollt og nærandi fyrir líkamann auk þess að vera einnig gott. Þetta er hins vegar ekki hin hefðbundna blómkálssúpa sem þið þekkið og hafið fengið áður. Þessi er bragðmikil og virkileg matarmikil.

Mig langar að fjalla aðeins um blómkál og næringargildi þess. Blómkál flokkast sem eitt af hinu svokallaða cruciferous grænmeti sem eru þær grænmetistegundir sem alltaf er talað um í sambandi við forvarnir gegn krabbameini. Spergilkál hefur þá yfirleitt fengið hvað mesta athygli, en blómkálið er ekki síður gott og næringarríkt. Blómkál inniheldur mikið af C-vítamíni, K-vítamíni og fólínsýru auk þess að innihalda fjöldann allan af öðrum næringarefnum sem eru góð fyrir líkamann. Það inniheldur omega 3 í formi ALA fitusýru og vinnur það með K-vítamíninu gegn bólgum í líkamanum. Túrmerikið vinnur svo auk þess líka gegn bólgum og má því segja að þessi súpa sé eiginlega alveg sérstök þegar litið er til samspils innihaldsefnanna og áhrifa þeirra á líkamann.

Ég er svolítið gjörn að meta næringargildi matar út frá litum vegna þess að litsterkur matur er yfirleitt sérstaklega hollur fyrir líkamann. Sumir vilja helst ekki nota rauðrófur, tómatvörur eða túrmerik af því það er gjörsamlega vonlaust að ná þeim blettum úr fötum, en þetta eru hins vegar þær fæðutegundir sem innihalda hvað mest af plöntuefnum (phytochemicals) sem eru svo ótrúlega mikilvæg fyrir varnir líkamans gegn ýmsum kvillum, t.d. krabbameini. Til dæmis er plöntuefnið sem finnst í tómötum, þ.e. lycopene, sérstaklega virk forvörn gegn blöðruhálskirtilskrabbameini og yfirleitt er hvað mest af lycopene í unnum tómatvörum, þ.e. tómatmauk og sólþurrkuðum tómötum. Ég mun fljótlega birta grein hér sem ég er að vinna í sem fjallar um plöntuefnin og mismunandi tegundir þeirra.

En þrátt fyrir að blómkálið sé nánast litlaust þá er það langt frá því að vera næringarsnautt. Sama er að segja um hvítlaukinn og laukinn sem er ekki sparaður í þessari uppskrift og gera einstakt bragð. Ekki hafa áhyggjur af því að kæfa næsta mann eftir þessa máltíð, vegna þess að hvítlaukurinn er það mikið eldaður að hann á ekki að finnast mikið. Smjörbaunirnar eru svo algjört ofurfæði, einstaklega ríkar af trefjum, járni, magnesíum, fólínsýru og fleiri mikilvægum næringarefnum. Smjörbaunir eru fitusnauðar og kólesteróllækkandi og því góðar fyrir þá sem eru með hátt kólesteról sem og þá sem eru með sykursýki. Það ættu allir að reyna að komast upp á lagið með að elda úr smjörbaunum. Þær eru heppilegar í buff, súpur, pottrétti og margt fleira.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: mangó
Grænmeti: blómkál, laukur
Krydd: hvítlaukur, túrmerik, svartur pipar, cumin, paprika, chili, steinselja
Braunir og kornmeti: smjörbaunir


Blómkálssúpa
6-8 manns

2 blómkálshausar
2 laukar
1 heill hvítlaukur
3 msk. kókosolía
2 msk. grænmetiskraftur frá Himneskri hollustu
2 tsk. salt – herbamare með kryddjurtum
½ tsk. túrmerik + svartur pipar
½ tsk. cumin
1 tsk. paprikukrydd
1,5 l vatn
½ – 1 tsk. þurrkaðar chiliflögur
2 dósir smjörbaunir – skolaðar
2 msk. mangó chutney
salt og pipar eftir smekk
fersk steinselja til skrauts (má sleppa)

Merjið hvítlaukinn og látið anda. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, svörtum pipar og chiliflögum á pönnuna og steikið í aðrar 2 mínútur. Bætið blómkálinu næst í pottinn og svo vatninu, grænmetiskraftinum og saltinu. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 10 mínútur eða þar til blómkálið er orðið mjúkt í gegn. Maukið súpuna þá með töfrasprota og kryddið með paprikukryddi,cumini og mangó chutney. Bætið að lokum smjörbaunum saman við og látið þær hitna í gegn. Skreytið með paprikukryddi og ferskri steinselju. Berið fram með nýbökuðu brauði.

About these ads

Filed under: blómkál, chili, hvítlaukur, laukur, mangó, paprika, Súpur, smjörbaunir, smjörbaunir, steinselja, svartur pipar, túrmerik, , , , , , , , , , , , ,

Súkkulaðismoothie

Þessi smoothie er sérstaklega vinsæll á þessu heimili. Hráar kakóbaunir, eða raw cacao nibs, eru virkilega hollar bæði fyrir hjartað og heilann og innihalda mikið magn andoxunarefna. Kakóbaunin inniheldur, eins og allt súkkulaði, koffín og er því gott að skipta kaffinu út fyrir súkkulaðismoothie á morgnanna. Þessi veitir manni meiri orku, næringu og vellíðan en kaffibollinn, þó svo að hann geti stundum verið algjörlega ómótstæðilegur.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: banani, avókadó
Kornmeti: hafrar

Uppskrift
fyrir 1

1 bolli haframjólk eða möndlumjólk
1 msk. cacao nibs (fæst í heilsubúðum)
1 tsk. malað hreint kakó
1 banani
½ avókadó
klakar
örlítið agavesíróp

Blandið saman í blender og drekkið með bros á vör.

Filed under: avokadó, bananar, Drykkir, haframjöl, Morgunmatur, Vegan, , , , , ,

Bragðmikil afrísk súpa með hnetum og kjúklingabaunum

Þessi súpa er mjög vel næringarfræðilega samsett. Hún inniheldur próteinríkar, trefjaríkar, fólínsýruríkar og járnríkar kjúklingabaunir, a vítamínríkar sætar kartöflur og gulrætur, prótínríkt gæðahnetusmjör, tómatarnir eru svo ríkir af lycopene og í rauða chilipiparnum er að finna capsaicin sem talið er vinna gegn krabbameini m.a. í blöðruhálskirtli. Hún er bragðmikil og matarmikil en í senn létt í maga og auðmeltanleg. Hún inniheldur einnig heila kanilstöng sem látin er sjóða í súpunni allan tímann og svo tekin úr áður en súpan er maukuð. Kanill er öflugt krydd sem er blóðsykurjafnandi og rannsóknir sýna einnig að vinni gegn ýmsum tegundum krabbameins (sjá t.d. hér).

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, gulrætur, sætar kartöflur, tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, rautt chili, hvítlaukur, kóríander, kúmin, ferskt kóríander, kanill
Hnetur: jarðhnetur

Uppskrift
fyrir 4-6

2 msk. kókosolía
2 laukar niðurskornir
1 msk ferskt engifer saxað
4 hvítlauksgeirar marðir
1 stór rauður chili niðurskorinn
1 kanilstöng
1 ½ tsk malað kúmin
1 ½ tsk malað kóríander
1 tsk salt
4 tómatar niðurskornir
2 meðalstórar sætar kartöflur niðurskornar
3 meðalstórar gulrætur niðurskornar
5 bollar vatn
4 msk gróft hnetusmjör
1 dós kjúklingabaunir
3 msk ferskt saxað kóríander

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn í 5-7 mínútur eða þar til hann er farinn að brúnast. Bætið þá hvítlauk, engiferi, chili, kanilstöng, kúmini, möluðu kóríander og salti í pottinn og steikið áfram í um 3 mínútur. Bætið næst tómötunum út í og steikið áfram í 2-3 mínútur. Bætið þá sætum kartöflum, gulrótum og vatni út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið súpuna í 40 mínútur við vægan hita eða þar til allt grænmetið er orðið mjúkt. Maukið þá með töfrasprota eða í blandara. Komið aftur fyrir í potti á hellunni og bætið hnetusmjöri saman, kjúklingabaunum og kóríander saman við. Látið allt blandast vel saman á vægum hita. Smakkið og bætið við salti og nýmöluðum pipar eftir smekk. Skreytið með fersku kóríander og berið fram með góðu brauði.

Filed under: chili, engifer, gulrætur, hvítlaukur, kanill, kartöflur, Kartöflur, kóríander, kúmin, Kjúklingabaunir, laukur, Súpur, svartur pipar, tómatar, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , ,

Linsubaunasúpa með aprikósum og engiferi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: aprikósur
Grænmeti: laukur, gulrætur
Krydd og kryddjurtir: chili, engifer
Korn og baunir: rauðar linsubaunir

Uppskrift
fyrir 8 manns

1 msk ólífuolía
3 stórir laukar niðurskornir
4 gulrætur niðruskornar
1 msk malað kúmin
1/2 tsk cayenne pipar
1 msk ferskt engifer smátt saxað
3 bollar rauðar linsubaunir
10 bollar vatn
1 bolli þurrkaðar aprikósur niðurskornar
2 tsk salt
Nýmalaður pipar eftir smekk

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn og gulræturnar í um 10 mínútur eða þar til þau eru farin að mýkjast vel. Bætið kúmin og cayenne pipar út í og hrærið vel. Lækkið hitann og lokið pottinum og látið mýkjast í 5-7 mínútur.  Bætið því næst insubaununum út í og 5-6 bollum af vatni. Hækkið hitann, hrærið og látið suðuna koma upp. Látið malla í um 20 mínútur. Passið að hræra mjög reglulega í og bæta við vatni ef þess þarf. Bætið aprikósum og salti út í súpuna og hrærið. Maukið súpuna í blender eða með töfrasprota. Hellið aftur í pottinn og þynnið með afgangnum af vatninu.  Bætið við salti og nýmöluðum pipar eftir smekk. Berið fram með brauðteningum eða nýbökuðu brauði.

Filed under: aprikósur, engifer, gulrætur, laukur, Rauðar linsubaunir, Súpur, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , ,

Indversk linsubaunasúpa

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir, trönuber
Krydd og kryddjurtir: Svört sinnepsfræ, engifer, túrmerik, kanill, kóríander
Kornmeti: rauðar linsubaunir
Grænmeti: laukur, tómatar, sellerí

Uppskrift
fyrir 4-6

2 msk kókosolía
1 1/2 tsk kúmin fræ
1 1/2 tsk svört sinneps fræ
2 laukar
2 sellerístilkar
1 msk ferskt engifer smátt saxað
2 tsk túrmerik
Smá nýmalaður svartur pipar
2 tsk malað kúmin
1/2 tsk salt
2 bollar niðurskornir tómatar (2-3 tómatar)
8 bollar gott grænmetissoð
2 bollar rauðar linsubaunir
1 kanilstöng
1 tsk sítrónusafi
1/4 bolli ferskt kóríander saxað
1/2 bolli þurrkuð trönuber

Hitið kókosolíu á pönnu og bætið kúminfræjum og sinnepsfræjum á pönnuna.  Maukið lauk og sellerí í matvinnsluvél eða saxið smátt og hafið tilbúið. Bíðið þar til fræin byrja að springa og hellið þá laukblöndunni út í og hrærið vel. Steikið í 3-4 mínútur við miðlungshita. Bætið þá engiferi, túrmeriki, svörtum pipar, kúmini og salti út í og hrærið. Steikið í um 2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómötum út í og hrærið saman við. Bætið því næst 1 bolla af soðinu út í og hrærið saman við. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 4-5 mínútur til þess að töluvert að vökvanum gufi upp. Bætið þá linsubaununum og kanilstönginni út í og afganginum af soðinu (7 bollum). Hrærið vel. Látið suðuna koma upp og látið malla í 30 mínútur.  Hellið svo í matvinnsluvél/blender eða notið töfrasprota til að mauka súpuna. Hellið aftur í pottinn og bætið fersku kóríander, sítrónusafa og trönuberjum út í og látið malla í um 10 mínútur til viðbótar. Saltið eftir smekk. Berið fram með góðu brauði og hummus.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, kóríander, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, sellerí, svartur pipar, svört sinnepsfræ, tómatar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , , , , , , , , ,

Tapas með beluga baunum og geitaosti

Þetta er alveg tilvalinn forréttur eða smáréttur þegar gesti ber að garði. Þetta er líklega eitthvað alveg nýtt fyrir flestum, beluga baunir og geitaostsblanda, og mun koma skemmtilega á óvart. Baunirnar eru sérlega hollar, trefjaríkar og prótínríkar.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: hvítlaukur
Baunir: beluga baunir

Uppskrift
gerir um 20 snittur

Baunirnar
¾ bolli beluga baunir, skolaðar
vatn
3 hvítlauksgeirar skornir í tvennt
½ tsk salt

Brauðið
1 súrdeigsbaguette brauð (eða venjulegt)
Extra virgin ólífuolía
Maldon salt

Geitaostsblandan
100 gr mjúkur geitaostur
smá mjólk
2 msk smátt skorið dill
Dill til að skreyta með

Hitið ofninn upp í 180 gráður.

Setjið baunirnar í pott og hellið vatni í pottinn þannig að það nái um 4 cm yfir baunirnar. Skerið tvö hvítlauksrif í tvennt og bætið út í pottinn. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 15-20 mínútur á vægum hita, eða þar til baunirnar eru orðnar mjúkar, en ekki þannig að þær maukist. Bætið salti út í pottinn til þess að baunirnar haldi sig betur. Hellið vatninu af og látið baunirnar ná stofuhita.

Skerið snittubrauðið í mjóar sneiðar. Hellið ólífuolíu í skál og blandið brauðsneiðunum saman við olíuna. Raðið brauðinu á ofnplötu og bakið í ofni í 10 mínútur eða þar til brauðið er orðið ljósbrúnt. Látið brauðið kólna aðeins.

Blandið saman geitaostinum og mjólkinni í skál. Mjólkin á eingöngu að þynna ostinn þannig að gott sé að smyrja hann, um 2 tsk. Hrærið vel. Bætið dillinu út í og hrærið vel.

Áður en snitturnar eru búnar til er mikilvægt að allt sé við stofuhita. Smyrjið þá geitaostsblöndunni á hverja snittu, stráið örlitlu maldonsalti yfir og bætið svo góðri skeið af baunum ofan á. Einnig er hægt að hafa baunirnar og geitaostsblönduna í tveimur skálum á borði þannig að fólk geti fengið sér eftir hentisemi.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, Beluga baunir, hvítlaukur, Smáréttir, svartar beluga baunir/svartar linsubaunir, Uppskriftir, , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: