Máttur matarins

Fæða sem forvörn

Gamaldags matur með hollri viðbót

Stundum fær dóttir mín að ráða. Frekar oft á sumum sviðum. Sjaldnar á öðrum. Þegar kemur að mat þá fær hún yfirleitt að ráða þegar við erum bara tvær í kotinu og oftast verður fiskur þá fyrir valinu. Ég kaupi þá yfirleitt silungsflök og við borðum þau með krydduðum sætum kartöflum. Það finnst okkur mjög gott. En það er þó ekkert betra að hennar mati en steiktur fiskur í raspi. Svo að síðast þegar við vorum tvær hér heima þá borðuðum við fisk í raspi uppá gamla mátann. Mér finnst það ágætt stundum en ég reyni þó alltaf að bæta örlítilli aukahollustu við þennan þjóðarrétt okkar. Í þetta skiptið steikti ég lauk og tómata með túrmeriki, svörtum pipar og tandoori kryddi. Þannig náði ég að bæta fullt fullt af hollustu í kvöldmatinn okkar. Túrmerik er eins og ég hef áður fjallað um algjört undrakrydd. Það var áður fyrr kallað saffran fátæka fólksins í Indlandi en er nú kallað gullnáma Indland, þar sem lækningarmáttur þess er svo gífurlega mikill og fjölbreyttur. Virka efnið í túrmeriki, kúrkúma, verður margfalt öflugra ef að túrmerik kemst í tæri við olíu og svartan pipar. Þess vegna er mælt með að elda túrmerik á sama hátt og gert er í Indlandi þegar búið er til masala. Þá er laukur og hvítlaukur steiktur fyrst upp úr olíu og kryddunum síðan blandað saman við. Því næst er tómötum yfirleitt blandað saman við og þá er komin hin hefðbundna masala sósa. Þessi steikti laukur ber því keim af hefðbundinni indverskri matargerð og ber að sama skapi lækningarmátt hennar.

Þetta kom mjög vel út og passaði vel með fiskinum. Endilega prófið.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, tómatar
Krydd og kryddjurtir: túrmerik, svartur pipar

Uppskrift
fyrir 2 svanga

1 stór laukur
6 konfekttómatar niðurskornir
1 tsk. túrmerik
½ tsk. tandoori krydd
salt og nýmalaður svartur pipar
ólífuolía eða repjuolía til steikingar

Hitið olíuna á pönnunni, bætið lauknum við og því næst kryddunum. Steikið í 3-4 mínútur við vægan hita og bætið þá tómötunum saman við. Steikið þar til tómatarnir eru orðnir mjúkir.

About these ads

Filed under: laukur, Meðlæti, svartur pipar, tómatar, túrmerik, Vegan, , , ,

Kjúklingur með sítrónu og kóríander

Þessi uppskrift er æðisleg. Ég hef gert hana ótalsinnum og hún stendur alltaf fyrir sínu. Upphaflega er hún úr bók eftir Madhur Jaffrey, eins og svo margar af indversku uppskriftunum sem ég elda, en ég hef hins vegar þróað hana með mér með tímanum og þannig gert talsverðar breytingar á upphaflegu uppskriftinni. Madhur Jaffrey bækurnar eru góðar fyrir þá sem eru að byrja að elda indverskan mat, þær eru frekar einfaldar og flestar mjög góðar. Eitt sem ég hef þó orðið vör við hjá henni er það að hún notar alveg ógrynni af salti, og ég nota yfirleitt þá þumalputtareglu þegar ég elda upp úr bókunum hennar að minnka saltið um helming.

Þessi uppskrift inniheldur nánast eingöngu fæðutegundir sem teljast krabbameinshamlandi. Mig langar aðeins að fjalla nánar um hvítlauk núna, þar sem ég á að vera löngu búin að leggja áherslu á mikilvægi þessarar yndislegu kryddjurtar sem ég finn einhverja leið til þess að nota í nánast allt sem ég elda. Hvítlaukur er ein elsta lækningarjurtin sem þekkist. Vegna sýkladrepandi eiginleika hvítlauks hefur hann verið notaður í hundruðir ára til að vinna gegn sýkingum. Í síðari heimstyrjöldinni var hvítlaukur notaður í miklu mæli á særða hermenn til að koma í veg fyrir sýkingar og einnig þegar skortur var á sýklalyfjum (sjá Anti Cancer bls 121). Read the rest of this entry »

Filed under: chili, engifer, hvítlaukur, kóríander, kúmin, Kjúklingur, sítrus ávextir, svartur pipar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , , , ,

Blómkál með engifer og gulum maísbaunum

Þessi réttur er frábært meðlæti með fiskréttum, kjúklingaréttum eða nánast hverju sem er. Blómkál inniheldur mikið magn af C-vítamíni, talsvert magn af K-vítamíni, fólínsýru og trefjum auk annarra vítamína og steinefna.

Hér er að finna athyglisverða grein sem fjallar um fyrirbyggjandi áhrif blómkáls, spergilkáls og annarra cruciferous tegunda af grænmeti. Í greininni kemur fram að ,,The American Cancer Society estimates that more than two-thirds of cancer may be prevented through lifestyle modification, and nearly one-third of these cancer occurrences can be attributed to diet alone.” Það hlutfall sem hér er rætt um er gífurlega hátt og undirstrikar mikilvægi umræðu og meðvitundar almennings á þessu sviði.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Grænmeti: laukur, blómkál, gular maísbaunir
Krydd og kryddjurtir: engifer, túrmerik, cayenne pipar, kóríander
Baunir: gular maísbaunir

Blómkál með engifer og gulum maís
fyrir 6 með mat

1 blómkálshaus niðurskorinn
2 msk. ólífuolía
1 tsk. kúminfræ
1 msk. ferskt engifer smátt saxað
¼ tsk. túrmerik
¼ tsk. cayenne pipar
2 litlir laukar niðurskornir
½ bolli vatn
1 dós gular maísbaunir
1 tsk. salt
3-4 msk. ferskt kóríander saxað

Hitið olíuna á wok-pönnu og bætið kúminfræjum, engifer, túrmeriki og svörtum pipar á pönnuna. Steikið í 1-2 mínútur og bætið svo lauknum á pönnuna. Steikið í 2-3 mínútur eða þar til laukurinn hefur linast. Bætið þá blómkáli, cayenne pipar og salti á pönnuna og hrærið saman við. Bætið því næst vatni og setjið lokið á pönnuna. Látið lokið vera á í 5 mínútur svo að blómkálið nái að mýkjast. Takið lokið af og bætið gulum baunum og kóríander saman við. Látið malla í aðrar 5 mínútur. Berið fram með mat.

Filed under: blómkál, engifer, laukur, maís, Meðlæti, svartur pipar, túrmerik, Vegan, , , , , , ,

Mild blómkálssúpa með sætri kartöflu og selleríi

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: trönuber
Grænmeti: laukur, blómkál, sæt kartafla, sellerí
Hnetur: pekan hnetur
Krydd: kóríander fræ, fennel fræ, chili, sinnepsfræ, svartur pipar, fenugreek fræ, túrmerik, karrýlauf, kanill

Uppskrift
fyrir 4-5

1 laukur niðurskorinn
1 lítill blómkálshaus bútaður niður
4 sellerístilkar niðurskornir
1 sæt kartafla niðurskorin
2 msk ólífuolía
1 tsk sterkt madras karrý
1/4 tsk malað cumin
1/4 tsk malað kóríander
1/4 tsk túrmerik
1/8 tsk kanill
Salt og svartur pipar
6 bollar gott grænmetissoð
nokkur þurrkuð trönuber í hverja skál
nokkrar ristaðar pekan hnetur í hverja skál

Hitið olíuna í potti og steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá sætu kartöflunum, blómkálinu, selleríinu, karrýinu, túrmerikinu, kóríanderinu, kúmininu og kanilinum út í og hrærið vel. Steikið í 3-4 mínútur við miðlungshita.  Bætið því næst soðinu saman við og hrærið. Nái upp suðunni og látið malla í um 15-20 mínútur eða þar til blómkálið og sætu kartöflurnar eru orðnar mjúkar í gegn. Hellið í blender/matvinnsluvél (eða notið töfrasprota) og maukið súpuna. Hellið aftur út í pottinn og saltið og piprið eftir smekk. Látið malla í nokkrar mínútur. Skreytið hverja skál með nokkrum þurrkuðum trönuberjum og ristuðum pekan hnetum. Berið fram með nýbökuðu brauði.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: blómkál, fennel, fenugreek, kanill, Karrý, karrýlauf, kartöflur, kóríander, laukur, pekanhnetur, Súpur, sellerí, svartur pipar, svört sinnepsfræ, túrmerik, trönuber, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Sterkt madras karrý

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: kóríander fræ, fennel fræ, chili, sinnepsfræ, svartur pipar, fenugreek fræ, túrmerik, karrýlauf

Uppskrift
gerir u.þ.b. 1/2 bolla

6 msk kóríander fræ
3 msk kúmin fræ
1 msk og 1 tsk fennel fræ
5 þurrkaðir rauðir chili
1 msk sinnepsfræ svört
2 msk svört piparkorn
2 msk fenugreek fræ
1 msk turmerik
20 þurrkuð karrýlauf

Ristið fræin á pönnu við miðlungshita í nokkrar mínútur eða þar til eldhúsið er farið að ilma vel. Hellið þá í matvinnsluvél eða kvörn auk karrýlaufanna og malið þar til allt er orðið fínt. Bætið þá túrmeriki út í og látið kólna. Geymið í loftheldum umbúðum.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, fennel, fenugreek, karrýlauf, kóríander, svartur pipar, svört sinnepsfræ, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , ,

Túrmerik

Kafli 8 í bókinni Anti Cancer, A New Way of Life heitir The Anti Cancer Foods og fjallar um mat sem vinnur gegn krabbameini. Mikilvægur punktur sem ítrekaður er á forsíðu bókarinnar er sá að allt fólk er með einhverjar krabbameinsfrumur í líkamanum, bara mismikið, og ekki er víst að þessar frumur myndi mein sem getur orðið líkamanum lífshættulegt.

Á bls. 104 í kafla 8 er fjallað um kryddið túrmerik. Þetta krydd nota Indverjar mikið í sinni matargerð, en flestir á vesturlöndum þekkja það sem gula litinn í karrýblöndunum okkar. Í kaflanum kemur fram að hver Indverji innbirgði að meðaltali 1,5 til 2 grömm (1/4 – 1/2 tsk) af túrmeriki á dag. Krydd kemur af rót túrmerikjurtarinnar og er einnig mikið notað í óhefðbundnum lækningum vegna þess hve virkt það er í að vinna gegn bólgu í líkamanum. Virka efnið í túrmeriki kallast kúrkúma og gengur kryddið í sumum tilvikum undir því nafni.

Sýnt hefur verið fram á að kúrkúma getur unnið gegn fjölmörgum tegundum krabbameina, t.d. krabbameini í ristli, lifri, maga, brjóstum, eggjastokkum, heila og hvítblæði. Rannsóknir á músum hafa sýnt að kúrkúma getur komið í veg fyrir myndun æxla í kjölfar langvarandi notkunar á krabbameinsvaldandi efnum s.s. vegna reykinga. Í því samhengi er vert að benda á að tíðni lungnakrabbameins á Indlandi er 8 sinnum lægri en á vesturlöndum, tíðni ristilkrabbameins er 9 sinnum lægri, tíðni brjóstakrabbameins 5 sinnum lægri og tíðni krabbameins í nýrum 10 sinnum lægri. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að magn krabbameinsvaldandi efna í andrúmslofti Indlands sé í mörgum tilfellum mun meira en á vesturlöndum.

Það sem er einnig mjög athyglisvert varðandi virkni túrmeriks er það að þegar vísindamenn í Tævan fóru að meðhöndla krabbamein með túrmeriki í hylkjum var það mjög vanmáttugt og upptaka þess sérlega takmörkuð í meltingarfærunum (sjá nánar bls 105 í Anti Cancer). Þá kom í ljós að þegar túrmerik er ekki notað samhliða svörtum pipar í matargerð (eins og er venjan í Indlandi) þá nær líkaminn ekki að vinna túrmerik þannig að það hafi bólguhemjandi áhrif. Svartur pipar rúmlega tvöþúsundfaldar virkni túrmeriks í líkamanum og er því mikilvægt að nota þessi krydd saman þegar eldað er. Einnig er mikilvægt að túmerik blandist saman við olíu þegar það er notað í matargerð. Þess vegna er venjan í indverskri matargerð að steikja fyrst laukinn upp úr olíu og bæta því næst kryddunum, þ.á.m. túrmeriki og svörtum pipar, út í og láta kryddin blandast olíunni og lauknum áður en lengra er haldið.

Það er því ekki tilviljun að fyrsta fæðutegundin sem fjallað er um hér á síðunni sé túrmerik. Máttur þess hefur verið staðfestur með tugum ef ekki hundruðum rannsókna og er því talinn óumdeildur.

Ég mæli sérstaklega með eftirtöldum uppskriftum sem innihalda túrmerik:
Indversk linsubaunasúpa
Tælenskt rautt karrý með tófú og ferskum aspas
Karrýpottréttur með kjúklingabaunum og sætum kartöflum

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: túrmerik, , , , ,

Indversk linsubaunasúpa

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítrus ávextir, trönuber
Krydd og kryddjurtir: Svört sinnepsfræ, engifer, túrmerik, kanill, kóríander
Kornmeti: rauðar linsubaunir
Grænmeti: laukur, tómatar, sellerí

Uppskrift
fyrir 4-6

2 msk kókosolía
1 1/2 tsk kúmin fræ
1 1/2 tsk svört sinneps fræ
2 laukar
2 sellerístilkar
1 msk ferskt engifer smátt saxað
2 tsk túrmerik
Smá nýmalaður svartur pipar
2 tsk malað kúmin
1/2 tsk salt
2 bollar niðurskornir tómatar (2-3 tómatar)
8 bollar gott grænmetissoð
2 bollar rauðar linsubaunir
1 kanilstöng
1 tsk sítrónusafi
1/4 bolli ferskt kóríander saxað
1/2 bolli þurrkuð trönuber

Hitið kókosolíu á pönnu og bætið kúminfræjum og sinnepsfræjum á pönnuna.  Maukið lauk og sellerí í matvinnsluvél eða saxið smátt og hafið tilbúið. Bíðið þar til fræin byrja að springa og hellið þá laukblöndunni út í og hrærið vel. Steikið í 3-4 mínútur við miðlungshita. Bætið þá engiferi, túrmeriki, svörtum pipar, kúmini og salti út í og hrærið. Steikið í um 2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómötum út í og hrærið saman við. Bætið því næst 1 bolla af soðinu út í og hrærið saman við. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 4-5 mínútur til þess að töluvert að vökvanum gufi upp. Bætið þá linsubaununum og kanilstönginni út í og afganginum af soðinu (7 bollum). Hrærið vel. Látið suðuna koma upp og látið malla í 30 mínútur.  Hellið svo í matvinnsluvél/blender eða notið töfrasprota til að mauka súpuna. Hellið aftur í pottinn og bætið fersku kóríander, sítrónusafa og trönuberjum út í og látið malla í um 10 mínútur til viðbótar. Saltið eftir smekk. Berið fram með góðu brauði og hummus.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: Baunir, kóríander, laukur, Rauðar linsubaunir, Rauðar linsubaunir, sítrus ávextir, Súpur, sellerí, svartur pipar, svört sinnepsfræ, tómatar, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , , , , , , , , ,

Indverskur fiskréttur með fersku kóríander og kasjúahnetum

Þetta er mildur indverskur fiskréttur sem flestum ætti að finnast góður. Hneturnar og fræin mýkja hann og gefa honum ákveðna fyllingu. Tómatarnir og kóríanderið mynda svo ferskleika sem léttir réttinn mikið. Ég notaði steinbít. Mér finnst steinbítur mjög góður, ekki feitur og í þurrari kantinum. Það er þó algjörlega undir hverjum og einum komið hvaða fiskur notaður er. Fyrir þá sem eru hrifnir af þorski þá væri hann örugglega frábær í þennan rétt, einnig koli, smálúða og ef til vill risarækjur. Ég á líka örugglega eftir að gera þennan rétt einhvern tíma með tófu. Þegar sojaafurðir eru notaðar saman með túrmeriki aukast krabbameinshamlandi áhrifin mikið. Sama er að segja um túrmerik þegar það fer saman með svörtum pipar (sjá grein hér).

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Ávextir: sítróna
Grænmeti: tómatar
Krydd og kryddjurtir: engifer, hvítlaukur, chili, túrmerik, svartur pipar, garam masala ( kardimommur, negulnaglar, svartur pipar, kóríander)
Hnetur og fræ:
kasjúahnetur, sólblómafræ

Uppskrift:
fyrir 4-6

600 gr. steinbítur
2 tsk engifer maukað
2 hvítlauksgeirar maukaðir
1 tsk sítrónusafi
1 tsk salt
1/2 tsk chili krydd
1 dós kókosmjólk
20 stk kasjúahnetur
3 msk sólblómafræ
2 tsk kókosolía
1 stór hvítlauksgeiri maukaður
1/2 tsk túrmerik
nýmalaður pipar
1 tsk malað kúmin
1 tsk paprikukrydd
1 msk tómatmauk
2 stórir þroskaðir tómatar maukaðir í matvinnsluvél eða smátt saxaðir
1 1/2 tsk garam masala
1/4 bolli ferskt kóríander smátt saxað
salt eftir smekk

Sneiðið fiskinn niður í bita og setjið í skál með sítrónusafa, engiferi, hvítlauk, chilikryddi og salti. Blandið vel og látið liggja í marineringu í 30-40 mínútur.

Hellið 1 bolla af kókosmjólk í matvinnsluvél. Bætið kasjúahnetum og sólblómafræjum út í og blandið þar til hneturnar hafa maukast.

Hitið kókosolíu á pönnu og steikið hvítlaukinn á miðlungshita í 2-3 mínútur. Bætið þá túrmeriki, smá nýmöluðum pipar, möluðu kúmini, paprikukryddi á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Bætið þá tómatmauki og maukuðum tómötum út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót.  Bætið kókosmjólkurblöndunni á pönnuna og blandið vel. Látið suðuna koma upp. Bætið þá fiskinum út í og blandið vel. Bætið því næst garam masala, fersku kóríander og afganginum af kókosmjólkinni út í. Sjóðið í nokkrar mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Saltið aukalega eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, engifer, Fiskur, hvítlaukur, kasjúahnetur, negulnaglar, sítrus ávextir, sólblómafræ, svartur pipar, túrmerik, Uppskriftir, , , , , , , , , , , , , ,

Tælenskt rautt karrý með tófú og ferskum aspas

Þetta er einn af mínu uppáhalds réttum. Ég geri hann ótrúlega oft vegna þess að maður er mjög fljótur að elda hann og hann er hollur og góður. Fyrir þá sem ekki eru vanir að nota tófú er vel hægt að nota kjúklingabringur í staðinn. Það er líka mjög gott, þó svo að ég kjósi tófúið frekar. Ef ekki fæst ferskur aspas er betra að sleppa honum heldur en að nota aspas í dós. Það er hins vegar vel hægt að setja eitthvað annað í staðinn, eins og blaðlauk, spergilkál eða græna papriku.

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd og kryddjurtir: chili, engifer, hvítlaukur, túrmerik, svartur pipar
Baunir: sojabaunir (tófú)

Uppskrift
fyrir 4
1 msk kókosolía
2 msk tælenskt rautt karrý paste
2 þurrkaðir rauðir chili brotnir í tvennt
1 pakki miðlungsþétt tófú þerrað
1/2 búnt ferskur aspas skorinn í 5 cm langa búta
1 msk fiskisósa
3 msk ferskt engifer smátt saxað
4 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
1 tsk túrmerik
nýmalaður svartur pipar
2-3 lime lauf
1 dós kókosmjólk

Hitið olíuna á wok pönnu. Þegar olían er orðin vel heit steikið þá aspasinn í 2-3 mínútur og takið svo af pönnunni og leggið til hliðar. Bætið því næst chilii, rauðu karrýi, túrmeriki, svörtum pipar, engiferi og hvítlauk á pönnuna og steikið í um 2 mínútur. Bætið næst tófuinu á pönnuna og steikið þar til tófúið hefur brúnast á alla kanta. Bætið þá fiskisósu út í og blandið vel saman við. Bætið síðan aspas, kókosmjólk og lime laufum út í. Látið suðuna koma upp, lækkið undir og látið sjóða í 5-10 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, engifer, hvítlaukur, Karrý, svartur pipar, Tófú, túrmerik, Uppáhalds, Uppskriftir, Vegan, , , , , , , , ,

Heimatilbúið karrý frá Sri Lanka

Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir:
Krydd: chili, kóríander, fennel, kardimommur, negulnaglar, túrmerik, kanill

Uppskrift
Gerir um 1/3 bolla

4 þurrkaðir rauðir chili
1 msk kóríander fræ
1 msk cumin fræ
1 msk fennel fræ
½ tsk kardomommufræ innan úr heilum kardimommum (tekið innan úr kardimommunum sjálfum)
½ tsk negulnaglar
1 msk túrmerik
½ tsk kanill

Setjið chiliið, kóríander fræin, cumin fræin, fennel fræin, kardimommufræin og negulnaglana á þurra pönnu og hitið töluvert. Ristið fræin á pönnunni í 2-3 mínútur eða þar til þau eru farin að gefa frá sér góðan ilm. Passið að brenna fræin ekki. Hellið fræjunum í kaffikvörn, mortel (gæti þó verið erfitt) eða matvinnsluvél og malið fínt. Hellið kryddinu í skál og bætið túrmeriki og kanil saman við. Sigtið frá bita ef eitthverjir eru.

Add to DeliciousAdd to DiggAdd to FaceBookAdd to Google BookmarkAdd to Twitter

Filed under: chili, fennel, kanill, kardimommur, Karrý, kóríander, negulnaglar, Uppáhalds, Uppskriftir, , , , , , , , ,

Krabbamein

Á hverju ári greinast yfir 12 milljónir manns í heiminum með krabbamein og yfir 7 milljónir deyja vegna sjúkdómsins. Þrátt fyrir þessar ógnvekjandi tölur er krabbamein sjúkdómur sem margir telja að hægt sé að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífstíl og réttu mataræði. World Cancer Research Fund hefur fullyrt að þriðja hvert krabbameinstilfelli tengist beint lélegu mataræði og þá yfirleitt skorti á fæðu úr plönturíkinu. Af þessu leiðir að óhollt mataræði er orðið gífurlega alvarlegt vandamál í heiminum og er brýnt að gripið sé inn í með uppfræðslu um nauðsyn holls mataræðis og heilbrigðra lifnaðarhátta. Fjöldi rannsókna sýna fram á mátt vissra fæðutegunda til þess að vinna gegn krabbameinsfrumum í líkamanum og þannig uppbyggingu lífshættulegra meina.

Staðreyndir

Ekkert lyf eða vítamín getur komið í stað heilsusamlegs mataræðis, sem er uppfullt af næringu úr jurtaríkinu, snautt af mettaðri fitu, ríkt af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum og þar sem trefjaríkar kornvörur eru kjölfestan í þeim kolvetnum sem borðuð eru.
Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólguvef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum.
Mikil neysla á fæðu sem inniheldur óholla fitu, sykur og rautt kjöt samfara skorti á fæðu úr jurtaríkinu veldur bólguhvetjandi ástandi í líkamanum, sem á sama tíma eykur líkurnar á myndun krabbameins.
Omega-3 fitusýrur eru bólguhemjandi á meðan omega-6 fitusýrur eru bólguhvetjandi. Því er mikilvægt að jafnvægi sé milli þessara tveggja fitusýra í líkamanum.
Flestir innbyrða u.þ.b. 25 sinnum meira af omega-6 fitusýrum en omega-3 fitusýrum. Þetta stuðlar að bólguviðbrögðum í líkamanum sem getur aukið líkurnar á krabbameini.
Enginn getur útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein. En fólk getur hins vegar minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera þær lífstílsbreytingar sem nauðsynlegar eru.

Hafa samband

Ég heiti Þórunn Steinsdóttir og er lögfræðingur og einnig mikil áhugamanneskja um matargerð, holla lifnaðarhætti og forvarnir gegn krabbameini. Ég eyði miklum tíma í matargerð og að kynna mér mikilvægi heilbrigðs mataræðis sem forvörn gegn krabbameini. Hér mun ég miðla upplýsingum um efnið og uppskriftum sem innihalda fæðutegundir sem vinna gegn krabbameini.
Endilega sendið mér tölvupóst ef upp vakna spurningar um efni síðunnar á matturmatarins@gmail.com.

Sláið inn tölvupóstfang og ýtið á "gerast áskrifandi"

Join 359 other followers

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 359 other followers

%d bloggers like this: